Persónuverndarstefna Safnatorgs

Síðast uppfært: 11. október 2026

Ábyrgðaraðili

Easyevent ehf. er ábyrgðaraðili þeirra persónuupplýsinga sem unnið er með á Safnatorgi (safnatorg.com). Fyrirspurnir og beiðnir um réttindi þín sendast á easyevent@easyevent.is.

Hvaða upplýsingum söfnum við?

  • Aðgangur: nafn, netfang, hvort netfangið hefur verið staðfest, og dulkóðað form lykilorðsins (aldrei lykilorðið sjálft). Skráirðu þig inn með Google fáum við nafn og netfang frá Google, en aldrei lykilorðið þitt þar.
  • Það sem þú skráir: safnið þitt (umslög, merki, athugasemdir, stimplar, ástand) og myndir sem þú hleður upp, óskalistar og deilingarslóðir sem þú býrð til, sölutilboð, gagntilboð og myndir sem fylgja þeim.
  • Upplýsingar í viðskiptum: þegar samið er um sölutilboð skráir kaupandi heimilisfang til sendingar og seljandi kennitölu og reikningsnúmer svo kaupandi geti greitt. Þessar upplýsingar eru geymdar dulkóðaðar (AES-256), aðeins mótaðilinn í sömu viðskiptum sér þær, og þeim er eytt 7 dögum eftir að samið var. Þú getur valið að vista þær líka í stillingum fyrir næstu viðskipti; þar eru þær einnig dulkóðaðar og þú getur eytt þeim hvenær sem er.
  • Tæknilegar upplýsingar: IP-tala þín er notuð í stuttan tíma (mest klukkustund) til að verjast misnotkun, t.d. ítrekuðum innskráningartilraunum. Við skráum hvenær þú notaðir síðuna síðast.

Til hvers og á hvaða grundvelli?

Til að veita þjónustuna sem þú skráðir þig fyrir: halda utan um safnið þitt, vakta markaði fyrir óskalistann og láta þig vita, og miðla sölutilboðum milli safnara. Grundvöllurinn er samningur okkar við þig (6. gr. 1. mgr. b-liður persónuverndarreglugerðarinnar). Varnir gegn misnotkun og öryggi byggja á lögmætum hagsmunum (f-liður).

Kennitala seljanda er eingöngu notuð svo kaupandi geti greitt inn á réttan reikning, sem er málefnalegur tilgangur í skilningi 13. gr. laga nr. 90/2018.

Hverjir sjá upplýsingarnar?

  • Óskalistinn þinn er einkamál. Deilirðu honum sér viðtakandi slóðarinnar nafnið þitt og óskirnar, ekkert annað.
  • Kjósirðu að gera safnið þitt opið sjá aðrir nafnið þitt og safnið.
  • Í sölutilboðum sér mótaðilinn nafnið þitt; netfang og upplýsingar í viðskiptum aðeins eftir að samið er.

Við seljum aldrei persónuupplýsingar. Eftirtaldir vinnsluaðilar vinna með þær fyrir okkar hönd, eingöngu til að reka þjónustuna:

  • Supabase: gagnagrunnur og myndageymsla, hýst í Svíþjóð (ESB).
  • Vercel: hýsing vefsins, keyrsla í Svíþjóð.
  • Resend: sending tölvupósts (netfang, nafn og efni póstsins).
  • Google: aðeins ef þú velur að skrá þig inn með Google.
  • GitHub: geymir dulkóðuð afrit af gagnagrunninum í 30 daga.

Vercel, Resend, Google og GitHub eru bandarísk fyrirtæki. Flutningur upplýsinga til þeirra byggir á gagnaverndarramma ESB og Bandaríkjanna (EU–US Data Privacy Framework) eða stöðluðum samningsákvæðum. Markaðsvöktunin leitar á eBay og öðrum mörkuðum eftir útgáfum, en sendir þeim engar upplýsingar um þig.

Hve lengi geymum við upplýsingarnar?

  • Aðgang og það sem þú skráir: þar til þú eyðir því eða aðganginum.
  • Heimilisfang, kennitölu og reikningsnúmer í viðskiptum: 7 daga eftir að samið var.
  • IP-tölur í vörnum gegn misnotkun: mest eina klukkustund.
  • Afrit: dulkóðuð afrit eru geymd í 30 daga, svo eydd gögn geta verið þar í allt að 30 daga áður en þau hverfa.

Vafrakökur og geymsla í vafranum

Síðan notar aðeins nauðsynlegar kökur: innskráningarköku (gildir í 30 daga), tungumálsval og röðun lista, hvort þú hefur séð kynningarmyndbandið á forsíðunni (7 daga), og tímabundnar kökur meðan innskráning með Google fer fram. Í geymslu vafrans geymum við hvar þú varst á síðu og hvort þú hefur falið ábendinguna um að setja síðuna upp sem app. Engar auglýsinga- eða greiningarkökur.

Öryggi

Öll umferð er dulkóðuð (HTTPS). Lykilorð eru geymd sem hash (bcrypt) og upplýsingar í viðskiptum dulkóðaðar (AES-256). Aðgangur að gögnum er takmarkaður við það sem hver notandi á rétt á að sjá.

Réttindi þín

Þú átt rétt á að fá aðgang að upplýsingum um þig, fá þær leiðréttar, fá þeim eytt, takmarka vinnslu, fá þær afhentar á tölvutæku formi og andmæla vinnslu. Flestu breytirðu sjálf(ur) í stillingum, og þar getur þú líka eytt aðganginum þínum og öllum gögnum. Aðrar beiðnir sendast á easyevent@easyevent.is.

Teljir þú vinnslu brjóta gegn persónuverndarlögum getur þú kvartað til Persónuverndar (personuvernd.is).

Breytingar

Breytist stefnan verulega látum við notendur vita á síðunni eða í tölvupósti.