Notkunarskilmálar Safnatorgs

Síðast uppfært: 21. september 2026

Þjónustan

Safnatorg er vettvangur fyrir safnara íslenskra frímerkja: skráning eigin safns, óskalistar. Þjónustan er í prófunarfasa og getur breyst, legið niðri eða gögnum verið breytt án fyrirvara á meðan.

Aðgangur

Þú berð ábyrgð á eigin aðgangi og því sem gert er í þínu nafni. Óheimilt er að villa á sér heimildir eða trufla rekstur síðunnar. Brot geta varðað lokun aðgangs.

Efni frá notendum

Myndir og texti sem þú setur inn eru áfram þín eign, en þú veitir Safnatorgi heimild til að birta efnið á síðunni. Þú ábyrgist að hafa rétt til birtingar.

Ábyrgðartakmörkun

Þjónustan er veitt eins og hún er. Skráargögn byggja m.a. á Frímerkjalista Íslandspósts og markaðsupplýsingar koma frá ytri síðum — hvort tveggja getur innihaldið villur. Safnatorg ber ekki ábyrgð á tjóni sem rekja má til notkunar þjónustunnar.